30 maí 2021

KR b er meistari neðri deilda 9. flokks drengja 55-52 sigur á Skallagrím í úrslitaleik í Mathús Garðabæjarhöll Stjörnunnar í dag.

KR b hafði frumkvæðið lengst af og leiddi mest með 11 stigum. Skallagrímur gafst þó ekki upp og náði að komast yfir þegar skammt var til leiksloka. KR b náði forystunni að nýju og hélt henni til loka á æsispennandi lokamínútum. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Einar Marteinn Ólafsson fór fyrir liði KR b og var valinn maður leiksins í leikslok. Hann skoraði 15 stig og tók 7 fráköst. Guðjón Gunnarsson fór fyrir liði Skallagríms með 19 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar.