6 feb. 2019

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni.

Úrskurður nr. 32/2018-2019
Með vísan til ákvæðis í 1.mgr. b-liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jóhann Árni Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, sæta eins leiks bann vegna háttsemi sinnar í leik ÍR og Grindavíkur í Íslandsmóti 1. deild meistaraflokks kvenna, sem leikinn var 26. janúar 2019.

Úrskurður nr. 33/2018-2019
Með vísan til ákvæðis í a-lið 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gunnar Ólafsson, leikmaður Keflavíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Keflavíkur í Domino´s deild meistaraflokks karla, sem leikinn var 27. janúar 2019.

Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á morgun fimmtudag.