21 jún. 2002Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á Promotion Cup í Andorra með 56-51sigri á Kýpur í undanúrslitaleiknum í dag. Íslenska liðið var fimm stigum undir í hálfleik, 20-25, en frábær barátta og sterkur liðsandi skilaði sigri á spennandi lokamínútum. Íslensku stelpurnar hittu úr 9 af 10 vítum sínum í síðasta leikhlutanum sem taldi mikið í lokin. Anna María Sveinsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig og Birna Valgarðsdóttir gerði 11. Íslensku stelpurnar spila til úrslita á mótinu á morgun klukkan 14:00 að íslenskum tíma en nú stendur yfir hinn undanúrslitaleikurinn þar sem Albanía og Lúxemburg berjast um að mæta Íslandi á morgun. Gangur leiksins: 0-2, 2-2, 4-5, 8-5, 8-11, (10-16), 13-16, 13-18, 15-18, 15-23, 19-24, (20-25), 21-25, 23-25, 23-28, 28-28, 30-30, 32-36, (38-36), 40-36, 40-39, 44-41, 44-45, 48-47, 51-47, 53-49, 53-51, 56-51. Fráköst: Ísland 43 (18 í sókn), Kýpur 44 (19). Tapaðir boltar: Ísland 11, Kýpur 15. 3ja stiga körfur: Ísland 1/12, Kýpur 3/20. Vítanýting: Ísland 15/20, Kýpur 12/21. Stig íslenska liðsins í leiknum: Anna María Sveinsdóttir 14 (10 fráköst, 3 stoðsendingar), Birna Valgarðsdóttir 11 (6 fráköst), Helga Þorvaldsdóttir 9 (5 fráköst, 5 stoðsendingar), Signý Hermannsdóttir 8 (6 fráköst), Guðbjörg Norðfjörð 5 (8 fráköst, 5 í sókn), Erla Þosteinsdóttir 5 (á 9 mínútum, sóknarfrákast, stoðsending og varið skot), Kristín Björk Jónsdóttir 2, Kristín Blöndal 2 (4 stoðsendingar á 15 mínútum), Hildur Sigurðardóttir og Lovísa Guðmundsdóttir komu inn á en skoruðu ekki en Svava Ósk Stefánsdóttir og Helga Jónasdóttir komu ekki við sögu í leiknum.