28 apr. 2002Njarðvík og Haukar unnu í dag tvo síðustu Íslandsmeistaratitla tímabilsins í yngri flokkunum. Njarðvík vann KR 69-66 í úrslitaleik drengjaflokks og Haukar unnu Keflavík, 46-41, í úrslitaleik unglingaflokks kvenna. NJarðvík og Haukar unnu því þrjá Íslandsmeistaratitla hjá yngri flokkum í vetur, Njarðvík alla í karlaflokki og Haukar alla í kvennaflokki. Ólafur Aron Ingason var með 21 stig, 5 stolna og 4 stoðsendingar fyrir Njarðvík í úrslitaleik drengjaflokks, Guðmundur Jónsson var með 14 stig og 8 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson var með 13 stig og 7 sóknarfráköst, Gunnar Örn Einarsson gerði 11 stig og Egill Jónasson var með 10 stig, 8 varin skot og 7 fráköst. Hjá KR gerði Steinar Magnússon 15 stig og þeir Jóel Sæmundsson (11 fráköst, 4 stoðsendingar), Sindri Sigurðsson og Jón Brynjar Óskarsson voru allir með 11 stig. Helena Sverrisdóttir var með 19 stig, 10 fráköst, 5 stolna og 5 stoðsendingar fyrir Hauka í úrslitaleik unglingaflokks kvenna og Pálína Gunnarsdóttir var með 17 stig. Báðar voru þær Íslandsmeistarar í þremur flokkum (9., 10. og unglingaflokki). Hjá Keflavík var Svava Ósk Stefánsdóttir með 18 stig, 12 fráköst og 5 varin skot og Guðrún Guðmundsdóttir var með 10 stig og 11 fráköst. Þá varð Keflavík Íslandsmeistari í 1. flokki karla með því að sigra Reyni S. í úrslitaleik 100-69.