16 apr. 2002ÍT-ferðir munu í sumar bjóða upp á ferðir í æfingabúðir í Bandaríkjunum, þar á meðal í Duke-hákólann og í FIVE-STAR búðirnar í Pittsburgh. Duke-búðirnar eru haldnar 22. árið undir stjórn Mike Krzyzewski eða Coach K eins og hann er kallaður. Duke-háskólinn er í Durham, Norður-Karólínu. Coach K er einn virtasti og sigursælasti þjálfari í sögu háskólakörfuboltans. Duke liðið hefur alls farið 17 NCAA mótið og 9 sinnum í NCAA Final Four. Alls hefur liðið unnið NCAA titilinn 3 sinnum undir hans stjórn og 6 sinnum orðið ACC meistarar. Margir þekktir leikmenn hafa komið frá Duke skólanum s.s. Christian Laettner, Bobby Hurley, Shane Battier, Elton Brand, Grant Hill o.m.fl. Ferðadagar: 21/6 til 28/6 – 5 daga búðir + 2 aukadagar í Washington. Skemmtilegar búðir, allt mjög vel skipulagt og góður matur. Allir þjálfarar og leikmenn liðsins eru á staðnum á meðan búðirnar standa yfir. Ógleymanleg lífsreynsla sem enginn verður svikinn af. - Aldur: 14 –17 ára (strákar eingöngu) FIVE-STAR búðirnar Búðirnar haldnar 35. árið í Pittsburgh, Pennsylvaniu. Stærstu og virtustu körfuknattleiksbúðir í Bandaríkjunum. Margir af bestu þjálfurum og leikmönnum NBA hafa farið í gegnum 5 Star-búðirnar. Má þar nefna Patrick Ewing, Isiah Thomas, Moses Malone, Rachid Wallace, Michael Jordan og marga fleiri. NBA-stjörnur og þekktir þjálfar heimsækja búðirnar ár hvert. Ferðadagar: 28/6 – 11/7 4 dagar búðir, sér fyrir bakverði og aðrar fyrir framherja / miðherja. 6 daga búðir, leikir, fyrirlestrar og stöðvar. 2 auka dagar í New York. Frábærar búðir fyrir þá sem hafa mikinn metnað til að verða betri; mikið æft og spilað, allt upp í 14 tíma á dag. ATH. Meðmæla krafist frá þjálfara ! - 15-18 ára ! Upplýsingar og skráning: ÍT ferðir – Laugardal, sími 588 9900, e-Mail: info@ittravel.is