15 apr. 2002KR-stúlkur urðu í kvöld Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta í 13. sinn þegar þær lögðu ÍS [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020801.htm[v-]64-68[slod-] í oddaleik og hreinum úrslitaleik um tiitlinn í Kennaraháskólanum. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402.htm[v-]Úrslitakeppnin[slod-] var ein sú mesta spennandi og skemmtilegasta frá upphafi og bar kvennakörfunni á Íslandi góða sögu. KR vann þarna Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð og í þriðja sinn á fjórum árum. KR varð þar með fyrsta liðið í íslenskum körfuknattleik til þess að koma aftur eftir að hafa lent 0-2 undir í einvígi. Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliði KR, varð ennfremur fyrsta konan til að taka við Íslandsbikarnum tvö ár í röð síðan að úrslitakeppni kvenna var sett fyrst á laggirnar 1993. Kerfið fraus enn á ný og því er ekki hægt að sjá tölfræði leiksins eins og staðan er þegar þessi orð eru skrifuð en vonandi verður það ræst upp á nýjan leik í fyrramálið og þá ætti tölfræði leiksins að vera komin inn. Hér koma helstu tölurnar: Atkvæðamestar hjá ÍS: Meadow Overstreet 23 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar Lovísa Guðmundsdóttir 16 stig, 9 fráköst Alda Leif Jónsdóttir 13 stig, 9 stoðsendingar, 8 fráköst, 4 varin, 4 stolnir Hafdís Helgadóttir 5 stig, 5 fráköst, 5 varin, 4 stoðsendingar Þórunn Bjarnadóttir 5 stig, 9 fráköst Atkvæðamestar hjá KR: Guðbjörg Norðfjörð 16 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar, hitti úr 5 af 8 skotum og 4 af 4 vítum Helga Þorvaldsdóttir 16 stig, 4 fráköst Hildur Sigurðardóttir 15 stig, 4 fráköst, 4 stolnir Carrie Coffman 9 stig, 17 fráköst, 4 stoðsendingar Kristín Björk Jónsdóttir 8 stig Gréta María Grétarsdóttir 4 stig, 5 fráköst