17 jan. 2002KKÍ mun standa fyrir þjálfaranámskeiði dagana 7 - 9 febrúar. Um er að ræða námskeið sem mun flokkast sem B-2 skv. nýju námsská ÍSÍ. Námskeiðið fer fram í Reykjavík og mun spænskur þjálfari, Jaime Ventura vera meðal fyrirlesara. Námskeiðið er ætlað þjálfurum sem hafa reynslu af þjálfun. Jaime Ventura hefur mikla reynslu sem þjálfari og hefur þjálfað á Spáni frá 1981, m.a. stórliðið Manresa. Undanfarin þrjú ár hefur hann starfað sem kennari hjá Evrópusambandi þjálfara EABC. Auk Ventura verða fengnir innlendir fyrirlesarar til að kenna á námskeiðinu og stefnt er að því að fá þjálfara þeirra karlaliða sem komast í bikarúrslitin til að mæta á námskeiðið og segja frá undirbúningi liðanna og taktík fyrir bikarúrslitaleikinn. Dagskráin verður kynnt betur síðar. Hægt er að skrá sig með tölvupósti á petur@kki.is. Verð á námskeiðið verður kr. 5.000,-