17 jan. 2002Landslið drengja fæddir 1986 mun leika næstu helgi í 2. deildinni í riðli sem fram fer í Hveragerði. Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, hefur valið eftirtalda leikmenn: Þórður Willardsson, Þór Ak. Tryggvi Pálsson, Fjölni Sveinbjörn Claessen, ÍR Skúli Þórarinsson, Reykdælum Kristján Sigurðsson, Njarðvík Jóhann Ólafsson, Njarðvík Halldór Gíslason, ÍR Bjarki Oddsson, Þór Ak. Baldur Ólafsson, Stjörnunni Alexander Dungal, Val Þáttaka liðsins í 2. deildinni er liður í undirbúningi liðsins fyrir norðurlandamótið næstu jól. Liðið er nýkomið úr mikilli æfingatörn í jólafríinu og stendur til að leika marga æfingaleiki í vetur.