9 jan. 2002Árlegur stjörnuleikur KKÍ verður haldinn að Ásvöllum laugardaginn 12. janúar. Þar mætir úrvalslið Íslendinga úrvalsliði erlendra leikmanna sem leika í úrvalsdeildinni. Án efa verður hart barist og mörg glæsileg tilþrifin eiga eftir að sjást. Ókeypis verður á leikinn. Ákveðið hefur verið að gera meira úr leiknum og deginum en áður hefur verið gert og ætlar KKÍ að standa fyrir skotkeppni fyrir leikmenn í MB 11 ára karla og kvenna. Keppnin fer þannig fram að hver og einn leikmaður tekur þrjú víti. Þeir sem hitta úr tveimur fara í úrslit og sigurvegarinn verður sem hittir flestum skotum úr 5 tilraunum. Vegleg verðlaun verða veitt frá And 1. Jafnframt verður skotkeppni fyrir leikmenn í 7. og 8. flokki karla og kvenna. Þar verður keppt í þriggja stiga skotkeppni þar sem leikmenn þurfa að hitta tveimur af fimm til að komast í úrslit. Sigurvegari í úrslitum verður sá sem hittir flestum skotum úr 5 tilraunum. Vegleg verðlaun verða veitt frá And 1. Dagskráin verður eftirfarandi; 15.30 Skotkeppni 11 ára drengja og stúlkna 15.30 Skotkeppni 12 og 13 ára drengja og stúlkna 17.00 Stjörnuleikur KKÍ þar sem úrvalslið Íslendinga mætir erlendum leikmönnum er leika í deildinni. 17.40 Þriggja stiga skotkeppni 17.45 Troðslukeppninni 17.55 Seinni hálfleikur í stjörnuleik. 18.20 Leik lokið.