12 des. 2001Leifur Garðarsson körfuknattleiksdómari hefur verið á ferð og flugi um Evrópu í haust og dæmt marga leiki á Evrópumótunum. FIBA hefur enn á ný úthlutað Leifi verkefnum, að þessu sinni á Spáni eftir áramótin. Þann 15. janúar mun Leifur dæma leik Valencia Pamesa og Strasbourg frá Frakklandi í Saporta cup, Evrópukeppni bikarhafa, og daginn eftir dæmir hann leik Fuenlabrada og Chalon í Evrópukeppni félagsliða, Korac cup. Spænsku liðin eru bæði efst í sínum riðli og eiga góða möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit.