3 des. 2001Valsmenn munu halda firma og félagahópakeppni á milli jóla og nýárs. Mótið fer fram fimmtudaginn 27., föstudaginn 28. og laugardaginn 29. desember 2001. Leikið verður í báðum sölunum að Hlíðarenda. Mótafyrirkomulagið fer eftir fjölda þátttökuliða. Leikið verður í riðlum og úrslitakeppni fer fram á laugardeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða verðlaunaveitingar(Egils-gullpeningar) í fljótandi formi að vanda. Á laugardeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda.Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Aðeins er leyfilegt að hafa einn leikmann úr 1. eða Epson deild í hverju liði. Þátttökugjald er kr. 15.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðs. Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökkum fyrir það liðna. Torfi Magnússon Grenimel 3 107 Reykjavík s: 551 2523 tm@ismennt.is