29 mar. 2001Stjórn KKÍ og kvennalandsliðsnenfd hafa náð samkomulagi við Sigurð Ingimundarson um að hann taki að sér starf landsliðþjálfara A-landsliðs kvenna. Sigurður tekur við liðinu strax og er samningur hans til 1. september 2002. Samningur fráfarandi þjálfara, Jóns Arnar Guðmundssonar var útrunninn og gaf hann ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sökum anna í vinnu. Vill Stjórn KKÍ þakka Jóni gott samstarf. Sigurður Ingimundarson þjálfaði kvennalandsliðið á árunum 1995 - 1997 með góðum árangri. Á þessum þremur árum lék liðið 14 leiki undir hans stjórn og sigraði í 9 og tapaði 5. Liðið sigraði þá bæði á Promotinon Cup á Möltu 1996 og á Smáþjóðaleikunum hér heima 1997. Verkefni framundan 1. Æfingamót í Lúxemburg 3.-7. maí. Auk Íslands taka Holland, Írland og Lúxemburg þátt í mótinu. 2. Æfingaferð í haust. Stefnt er að æfingaferð í haust en ekki hefur enn tekist að fá landsleiki fyrir liðið. 3. Promotion cup í júlí 2002. 4. Polar cup í ágúst 2002. Ráðning Sigurðar og verkefnaáætlunin sem gerð hefur verið er í samræmi við afreksstefnu KKÍ sem kynnt var nýlega. mt: Ólafur Rafnsson formaður KKÍ og Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari kvenna við undirritun samningsins.