21 mar. 2001Á föstudaginn kemur verður tekið í notkun nýtt símkerfi í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Um leið fær KKÍ nýtt símanúmer sem er 514 4100. Búast má við að erfitt geti reynst að ná sambandi við skrifstofu KKÍ meðan á tengingu nýja kerfisins stendur en vonandi verður nýja símkerfið komið í gagnið þegar líður á daginn. Nánari fréttir af þessari breytingu verða kynntar síðar, en ljóst er að símanúmer KKÍ verður 514 4100 frá og með föstudeginum 23. mars.