Hvítur
Hvítur er fyrir 11 ára krakka (6.bekkur).
Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna og auka áhuga á tækniæfingum.
Driplinu er skipt í þrjá aldursflokka og hver aldursflokkur ber einn lit.
- Rauður er fyrir 9 ára (4. bekkur).
- Blár er fyrir 10 ára (5. bekkur).
- Hvítur er fyrir 11 ára (6. bekkur).
Hver litur inniheldur 17 æfingar sem sýndar eru í 7 myndböndum. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.
Til að ná góðri færni í æfingum Driplsins þarf iðkandi að sinna æfingum jant og þétt yfir veturinn. Taka skal fram að þetta eru grunnæfingar í körfuknattleik og eitthvað sem ætti að vinna með í gegnum allan körfuboltaferilinn.
Hér má ná í efni til að prenta út.
Driplið veggspjald
Knattþrautir
- Kringum fætur og sleppa 5x hægri og 5x vinstri
- Stíga til hliðar 5x hægri og 5x vinstri
- Grípa framan og aftan 10x
Knattrak á staðnum
- Skæri 10x í röð
- Fyrir aftan bak 10x í röð
- Þrenna 6 umferðir
Knattrak á ferð
- Snúningur 6 ferðir
- Hörfa (stíga til baka 2 dripl) 6 ferðir
- Þrenna - setja saman 3 hreyfingar að eigin vali
Sniðskot
- Stunga og öfugt sniðskot 3x hægri og 3x vinstri
- Stunga og öfugt sniðskot hitta 6x á 30 sek
Skot
- Formskot 10x
- Knattrak og skot, hopp stopp 10x
- Víti, hitta 4 af 5
Sendingar
- Stjörnuskref og sending (m/krossskrefi) 10x
- Stjörnuskref 360°sending (m/krossskrefi) 10x
Vörn
- Stíga út 6x
Hér er hægt að horfa á öll myndböndin í einu.
Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira