Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi. Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. Njarðvík er í 1. sæti í Iceland Express deildinni með 15 sigra og 2 töp. Njarðvík er í efsta sæti á fimm tölfræðilistum þar af snúa fjórir þeirra af varnarleik. Njarðvík hefur fengið flest víti allra liða, fæst stig á sig, mótherjarnir nýta skotin sín verst á móti þeim ekki síst þar sem Njarðvíkur-liðið ver flest skot allra liða. Þá gefa mótherjar Njarðvíkur fæstar stoðsendingar á móti þeim. Njarðvík er í 2. sæti í 3ja stiga skotnýtingu, fæstum fengnum villum og yfir slökustu 3ja stiga skotnýtingu mótherja. Njarðvík er ekki í neðsta sæti á neinum lista en hér fyrir neðan má sjá sætaröð liðsins á öllum tölfræðilistunum. Röð liða í Iceland Express deildinni: 1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp 2. Keflavík 13-4 3. KR 12-5 4. Grindavík 12-5 5. Skallagrímur 11-6 6. Snæfell 10-7 7. ÍR 9-8 8. Fjölnir 7-10 9. Hamar/Selfoss 4-13 10. Þór Akureyri 4-13 11. Haukar 3-14 12. Höttur 2-15 Leikir sem Njarðvík á eftir: 23. febrúar ÚtileikurSnæfell (6. sæti) 26. febrúar Heimaleikur Höttur (12. sæti) 2. mars Útileikur Grindavík (4. sæti) 5. mars Heimaleikur Fjölnir (8. sæti) 9. mars Útileikur Keflavík (2. sæti) Tölfræði Njarðvíkur í Iceland Express deild karla 2005-2006: Sóknarleikurinn: Njarðvík 4. sæti Flest stig í leik 92,2 Njarðvík 5. sæti Fæstir tapaðir í leik 15,7 Njarðvík 4. sæti Flestar stoðsendingar í leik 18,6 Njarðvík 5. sæti Fæst varin skot mótherja 3,1 Njarðvík 9. sæti Flest sóknarfráköst í leik 9,8 Njarðvík 3. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 21,9 Njarðvík 3. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 9,9 Njarðvík 1. sæti Flest víti fengin í leik 25,6 Njarðvík 4. sæti Besta skotnýting 46,8% Njarðvík 2. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 38,1% Njarðvík 8. sæti Besta vítanýting 69,0% Njarðvík 11. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 27,5% Varnarleikurinn: Njarðvík 1. sæti Fæst stig á sig í leik 77,1 Njarðvík 2. sæti Fæstar villur fengnar í leik 18,9 Njarðvík 5. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 18,1 Njarðvík 1. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 13,1 Njarðvík 9. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 11,9 Njarðvík 1. sæti Flest varin skot í leik 7,4 Njarðvík 6. sæti Flestir stolnir boltar í leik 10,8 Njarðvík 4. sæti Fæst víti gefin í leik 19,9 Njarðvík 1. sæti Slakasta skotnýting móth. 39,9% Njarðvík 6. sæti Hæsta hlutfall frákasta 49,7% Njarðvík 5. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 69,7% Njarðvík 2. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 31,1% Bekkurinn: Njarðvík 5. sæti Flest stig frá bekk í leik 19,1 Njarðvík 4. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 57,6 Njarðvík 3. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 8,9 Njarðvík 8. sæti Flestar stoðs frá bekk í leik 2,7 Njarðvík 6. sæti Besta skotnýting hjá bekk 40,0% Njarðvík 4. sæti Besta vítanýting hjá bekk 70,9%