12 okt. 2026

Undanfarin misseri höfum við hjá Körfuknattleikssambandi Íslands fundið fyrir miklum áhuga erlendis frá vegna árangurs yngri landsliða Íslands síðastliðið sumar.

Afreksstjóri sambandsins, Hörður Unnsteinsson, fór í viðtal á dögunum við netmiðilinn Two Way Hoops varðandi árangurinn sem var frábær og einnig þróunina kvennamegin í íslenskum körfubolta en viðtalið má lesa hér.

Berglind Katla Hlynsdóttir fær síðan sérstaka umfjöllun miðilsins umfram það sem kemur fram í viðtalinu við Hörð en umfjöllun um hana sérstaklega má finna hér.

Virkilega gaman að sjá umfjöllun um það sem er að gerast í íslenskum körfubolta á erlendum miðlum.