Nemenja Sovic, Serbinn í liði Fjölnis, er aðeins annar evrópski útlendingurinn (Bosman leikmaðurinn) til að skora 40 stig eða meira í leik í úrvalsdeildinni. Sovic skoraði 41 stig í 93-110 sigri Fjölnis á Hamri/Selfossi, á Selfossi í gærkvöldi. Ivan Jonas, Tékkinn sem lék með Tindastól 1990-1992, skoraði tvívegis 40 stig eða meira í leik í deildinni. Hann gerði 41 stig í 93-85 sigri Tindastóls á Snæfelli 6. nóvember 1990 og 40 stig í 109-96 sigri Tindastóls á Keflavík 27. nóvember 1990. Alls hefur það gerst 314 sinnum að leikmaður skori 40 stig eða meira í úrvalsdeildinni frá því hún var sett á laggirnar 1978-1979 og Sovic var sá fyrsti á yfirstandi tímabili til að rjúfa 40 stiga múrinn. Sá leikmaður sem oftast hefur skorað 40 stig eða meira í úrvalsdeildinni er Danny Shouse UMFN sem 16 sinnum rauf 40 stiga múrinn. Franc Booker ÍR/Val tókst það 14 sinnum og Val Ingimundarsyni UMFN/Tindastól 13 sinnum. Aðrir sem hafa verið iðnir við kolann í stigaskori í gegnum tíðina og iðulega skorað 40 stig eða meira eru Damon Johnson Keflavík/ÍA, Joe Wright Breiðablik 10 sinnum, Stevie Johnson Haukar 9 sinnum, Joshua Helm KFÍ, Jonthan Bow Keflavík/KR/Valur 8 sinnum,Trent Smock ÍS 7, Ronald Bayless Valur/ÍA, Ronday Robinson UMFN 6 og Kristinn Friðriksson Keflavík/Þór Ak. 5 sinnum. (Aðeins tilgreind félög sem menn skoruðu fyrir). Sjá nánar tölfræðimet og fl. á [v+]http://www.kki.is/tolfraedi.asp[v-]tölfræðivefnum[slod-].