Í kvöld verður brotið blað í íslenskum kvennakörfuknattleik þegar fyrsti leikur íslensks félagsliðs í Evrópukeppni félagsliða fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Þegar lið bikarmeistaranna skráði sig til keppni fyrr á þessu ári lá vissulega ekki fyrir að mótherjarnir yrðu frá þremur af sterkustu körfuknattleiksþjóðum álfunnar, þ.e. frá Spáni, Frakklandi og Ítalíu - en landslið tveggja fyrsttöldu þjóðanna urðu í þriðja og fimmta sæti á nýafstaðinni úrslitakeppni í Tyrklandi, og Ítalía er gestgjafi næstu keppni árið 2007. Það er því sannarlega á brattann að sækja fyrir hið unga - en bráðefnilega - lið Haukastúlkna. Hinsvegar tel ég að enginn vafi leiki á því að áhorfendur að Ásvöllum í kvöld verða ekki sviknir um baráttu leikmannanna. Það verður án nokkurs vafa spennandi fyrir alla áhugamenn um körfuknattleik að fylgjast með þessum fyrsta Evrópuleik félagsliða í kvennakörfuknattleik hér á landi. En liðið er meira en leikmennirnir á vellinum. Aðstandendur liðsins hafa lagt mikið á sig við kynningu leiksins, og hafa verið duglegir að bjóða til leiksins t.a.m. öllum stúlkum sem æfa körfuknattleik á Íslandi. Það er höfðinglegt boð, sem ég trúi að margir muni þiggja. Það væri auðvitað ekki amalegt að slá í leiðinni aðsóknarmet á viðburð í kvennakörfuknattleik hér á landi... Ólafur Rafnsson, Formaður KKÍ.