Grindvíkingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í Iceland-Express deild karla í körfubolta líkt og lið Njarðvíkur, Keflavíkur og Hamars/Selfoss en Grindavík hefur einmitt byrjað liða best í úrvalsdeild karla undanfarin ár. Þetta er fjórða árið í röð sem Grindvíkingar vinna tvo fyrstu leiki sína og þeir eru líka það lið sem hefur náð besta sigurhlutfalli út úr fyrstu tveimur umferðunum í þau tíu ár sem núverandi fyrirkomulag hefur verið. Grindavíkurliðið hefur unnið 16 af 20 leikjum sínum í 1. og 2. umferð og verið átta sinnum með fullt hús eftir tvær umferðir. Keflavík hefur orðið Íslandsmeistari síðustu þrjú ár en í ekkert skiptið hefur liðið verið með fullt hús eftir tvo fyrstu leiki deildarkeppninnar. Þetta er í fyrsta sinn síðan haustið 2000 sem að Keflvíkingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína. Besti árangur í fyrstu tveimur umferðunum úrvalsdeildar 1996-2005: Grindavík 16 4 80,0% Njarðvík 14 6 70,0% Keflavík 14 6 70,0% Haukar 13 7 65,0% Tindastóll 11 7 61,1% KR 12 8 60,0% Þór Ak. 7 7 50,0% Hamar (Hamar/Selfoss) 6 8 42,9% ÍR 6 10 37,5% Skallagrímur 5 13 27,8% Snæfell 3 9 25,0% KFÍ 3 11 21,4% ÍA 4 4 50,0% Þór Þ. 2 0 100,0% Fjölnir 3 1 75,0% Breiðablik 1 7 12,5% Valur (Valur/Fjölnir) 0 8 0,0% Stjarnan 0 2 0,0% Höttur 0 2 0,0% Lið sem hafa oftast verið með fullt hús eftir fyrstu tvo leikina: Grindavík 8 Njarðvík 4 Keflavík 4 Haukar 4 KR 3 Tindastóll 3 Þór Akureyri 2 Hamar (Hamar/Selfoss) 2 Fjölnir 1 Skallagrímur 1 Þór Þorlákshöfn 1 ÍA 1 Aldrei: ÍR, Snæfell, Breiðablik, KFÍ, Valur (Valur/Fjölnir), Stjarnan og Höttur