Dregið hefur verið í 8-liða úrslit í bikarkeppni yngri flokka. Ekki var dregið í 11. flokki karla og 9. flokki kvenna þar sem þar eru aðeins 4 lið eftir. Unglingaflokkur karla UMFN - UMFG, ÍR - Stjarnan, Haukar - Fjölnir, Valur - KR. Drengjaflokkur ÍA - UMFN eða KFÍ, Fjölnir - Haukar, Valur - Keflavík, Þór Ak. - KR. 10. flokkur karla KR - Haukar, Breiðablik - Keflavík, UMFG - UMFN, Snæfell - Valur. 9. flokkur karla ÍR - Fjölnir, Keflavík - Þór Þ., Stjarnan - Breiðablik b, Haukar - KR. Unglingaflokkur kvenna UMFN - Haukar b, Haukar - Skallagrímur, Keflavík - ÍA, KFÍ - UMFG. 10. flokkur kvenna KR - UMFG, Haukar - Hamar/Selfoss, UMFN - Snæfell eða Kormákur, ÍR - Keflavík. Leikirnir fara fram 23.-30. janúar nk.