19 feb. 2016Tólf leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta sem mætir Portúgal í undankeppni EM 2017 eiga eitt sameiginlegt. Þeim hefur öllum tekist að verða Íslandsmeistarar á ferlinum. Meira
19 feb. 2016Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilar tímamótaleik í Ilhavo í Portúgal á laugardaginn en þriðji leikur íslenska landsliðsins í undankeppni EM 2017 verður jafnframt hennar sextugasti landsleikur.Meira
19 feb. 2016Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika sinn tuttugasta leik fyrir A-landslið Íslands í keppnum á vegnum FIBA þegar Ísland mætir Portúgal á laugardaginn í undankeppni EM 2017.Meira
19 feb. 2016Mynd: Ein af töskum liðsins sem skilaði sér, eins og sú sem varð eftir í Brussel.
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er komið til Ilhavo í Portúgal eftir langt ferðalag sem lengdist um næstum því tvo tíma vegna vandræða með eina mikilvægustu töskuna í íslenska hópnum.Meira
18 feb. 2016Íslenska kvennalandsliðið mætir Portúgal í fyrsta sinn þegar lið þjóðanna mætast í undankeppni EM 2017 í Ilhavo í Portúgal á laugardaginn kemur. Meira
18 feb. 20161988-árgangurinn varð í nóvember síðastliðnum fyrsti árangurinn í sögu íslenska kvennalandsliðsins sem nær að spila samanlagt meira en tvö hundruð landsleiki.Meira
18 feb. 2016Íslenska liðið og fararteymi er nú statt í Leifstöð og flýgur eftir um klukkutíma til Brussel þaðan sem flogið verður seinnipartinn til Portúgals.Meira
17 feb. 2016Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur ekki misst úr landsleik síðan að hún lék sin fyrsta A-landsleik á Norðurlandamótinu í Noregi í maí 2012.Meira
17 feb. 2016Íslenska kvennalandsliðið spilar sína fyrstu leiki frá upphafi í febrúarmánuði þegar íslensku stelpurnar mæta Portúgal á útivelli og Ungverjalandi í Laugardalshöllinni í undankeppni EM.Meira
17 feb. 2016Í kvöld fer fram einn leikur í Domino's deild karla þegar Stjarnan tekur á móti Haukum í Ásgarði í Garðabæ. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður í lifandi tölfræði hér á kki.is.Meira
17 feb. 2016Ívar Ásgrímsson er nú að hefja sitt fimmta ár sem þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta og er hann aðeins annar þjálfarinn sem nær því.Meira
16 feb. 2016Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta endurheimtir nú landsliðskonu fyrir komandi verkefni sín í febrúarmánuði. Hin 26 ára gamla Margrét Kara Sturludóttir mun þá leika sína fyrstu landsleiki í fjögur ár. Meira
16 feb. 2016Búið er að velja þá 12 leikmenn sem munu leika fyrri landsleikinn í þessum landsleikjaglugga en það er útileikur gegn Portúgal í undankeppni EM. Meira
16 feb. 2016Helena Sverrisdóttir, fyrir íslenska landsliðsins, er meðal efstu kvenna í helstu tölfræðiþáttunum í riðli íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni EM 2017. Meira
16 feb. 2016Landslið kvenna skipar nú 16 leikmenn en úr þessum hóp munu 12 leikmenn verða valdir sem taka þátt í leiknum í Portúgal á laugardaginn. Liðið verður við æfingar í dag og á morgun og mun svo halda að utan á fimmtudagsmorguninn.
Meira
15 feb. 2016Í janúar fór fram fjarnám í þjálfaranámi KKÍ 1.b. Námið var verkefni í sögu, mótahaldi og tímaseðlagerð. Einnig var tekið leikreglupróf. Átta þjálfara luku náminu með góðum árangri.Meira