
18 nóv. 2026
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í málum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 12/2026-2027
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Shawnteanna Tillman, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, sæta 15.000 króna sektar vegna háttsemi sinnar í leik Keflavík b gegn Þór Þorlákshöfn, sem fram fór þann 7 nóvember 2027.
Agamál 13/2026-2027
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Leikmaður, leikmaður Stjarnan/KFG, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjarnan/KFG gegn Tindastól/Smára, sem fram fór þann 14 nóvember 2026.
Agamál 16/2026–2027
Með vísan til d-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal leikmaður Selfoss, Kennedi Watkins, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. auk eins leiks banns vegna háttsemi sinnar í leik Selfoss og Njarðvíkur, sem fram fór 16. nóvember 2026.
Agamál 17/2026–2027
Með vísan til c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar KKÍ um aga- og úrskurðarmál skal leikmaður Njarðvíkur, Aníta Helgadóttir, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. vegna háttsemi sinnar í leik Selfoss og Njarðvíkur, sem fram fór 16. nóvember 2026.
Meirihluti aga- og úrskurðarnefndar, tveir nefndarmenn af þremur, telur að háttsemi leikmannsins teljist alvarlega grófur leikur eða ósæmileg framkoma í skilningi c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar. Einn nefndarmaður skilar sératkvæði og telur háttsemina þess eðlis að hún falli undir d-lið sömu málsgreinar, sem tekur til viljandi líkamsmeiðinga eða tilraunar til slíkra meiðinga.
Úrskurðurinn er samþykktur með tveimur atkvæðum gegn einu.
Agamál 101/2026-2027
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Emil Barja þjálfari Stjörnunnar, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 102/2026-2027
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Nebojsa Knezevic þjálfari Sindra, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 103/2026-2027
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Hrafn Kristjánsson þjálfari Breiðabliks, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Kæra 01/2026-2027
ÚRSKURÐARORÐ
Með vísan til 2. mgr. gr. 8.5 í reglugerð KKÍ um körfuknattleiksmót skal kærandi, Ungmennafélag Laugdæla (Laugdælir/Uppsveitir), dæmdur tuttugu – núll (20–0) sigur í leik félagsins gegn Knattspyrnufélagi Vesturbæjar í 32-liða úrslitum VÍSbikars karla sem fram fór þann 19. október 2026. Með vísan til 3. mgr. gr. 8.5 í reglugerð KKÍ um körfuknattleiksmót skal kærði, Knattspyrnufélag Vesturbæjar, greiða sekt að fjárhæð kr. 250.000 til Körfuknattleikssambands Íslands.


