
16 nóv. 2026
Stelpurnar okkar í A-landsliði Íslands eru búnar að standa sig ótrúlega vel í fyrstu tveimur leikjum A-riðils forkeppni EuroBasket 2029. Markmiðið er að vinna riðilinn og fyrstu tveir leikirnir sýna að það markmið er vel framkvæmanlegt.
Frábær byrjun liðsins í Ólafssal á laugardag kom liðinu á bragðið og heilt yfir héldu stelpurnar vel á spilunum frá upphafi til enda og var fimmtán stiga munur í hálfleik, 55-40 en leikurinn endaði 100-82 fyrir framan 850 áhorfendur og stuðningsfólk Íslands í Ólafssal.
Fyrirliðinn Sara Rún Hinriksdóttir átti frábæran leik með 31 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar. Yngstu leikmenn liðsins voru virkilega öflugar sömuleiðis en Berglind skoraði 23 stig og Rebekka 20 stig.
Stigaskor Íslands gegn Sviss í 100-82 sigri:
Sara Rún 31 stig
Berglind Katla 23 stig
Rebekka Rut 20 stig
Thelma Dís 9 stig
Isabella 6 stig
Diljá Ögn 5 stig
Þóranna Kika 4 stig
Emma 1 stig
Ásta Júlía 1 stig
Við ætlum að troðfylla Ólafssalinn annað kvöld gegn Aserbaísjan en áfram er FRÍTT inn fyrir 15 ára og yngri. Miðasala fyrir 16 ára og eldri er á Stubb.
Áfram ÍSLAND!


