4 nóv. 2026

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 08/2026–2027

Með vísan til c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal leikmaður Álftanes, Martins Laksa, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls og Álftanes sem fram fór þann 29. október 2026.

 

Agamál 09/2026–2027

Með vísan til a-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal leikmaður Tindastóls, Óliver Ólafsson sæta sekt að fjárhæð 15.000 kr. fyrir að yfirgefa svæði varamanna við slagsmál eða aðstæður sem leitt gátu til slagsmála, án þess að taka að öðru leyti þátt í þeim, í leik Tindastóls og Álftaness sem fram fór 29. október 2026.