
5 okt. 2026Laugardaginn 3. október síðastliðinn hélt KKÍ tölfræðinámskeið. Jón Svan Sverrisson hélt utan um fræðslu og kennslu á námskeiðinu og sá til þess að þeir 9 einstaklingar sem mættu fengju mikið út úr deginum. Nokkur félög óskuðu eftir námskeiðinu og þarna voru „stattarar" mættir frá 4 félögum til að læra inn á starfið og búnaðinn áður en þau fengu svo að vinna með nýjustu útgáfu FIBA live stats kerfisins í fyrsta sinn.
Svona námskeið hefur breyst á síðustu árum frá því að vera frekar fræðileg kynning yfir í það sem er núna meira verklegt og annað kennt betur síðar. Þátttakendur námskeiðisins tóku að lokum tölfræði á leik Hauka U og Aþenu í 1. deild kvenna í Ólafssal og mældist það vel fyrir. Frábært tækifæri að stökkva strax í djúpu laugina.
Þátttakendur ættu nú að hafa grunn til að taka tölfræði eða „statta" aðra keppnisleiki.
KKÍ óskar þátttakendum velfarnaðar og körfuboltafjölskyldan tekur glöð á móti þessum flotta hópi nýliða.


