
5 okt. 2026KR-ingar eru meistarar meistaranna karlamegin eftir 106-79 sigur gegn Grindavík en leikurinn fór fram í HS Orku-höllinni í Grindavík síðastliðinn laugardag.
Mirza Bulic var stigahæstur heimamanna með 20 stig og hjá KR voru Friðrik Anton Jónsson og Roberts Berzins stigahæstir með 21 stig.
Það styttist heldur betur í upphaf Bónusdeildar karla en fyrst umferð hefst næstkomandi fimmtudag, þetta var því fín upphitun fyrir upphaf deildarkeppninnar.
Til hamingju KR-ingar með sigurinn!


