2 okt. 2026Spá formanna, fyrirliða og þjálfara Bónusdeildar karla fyrir komandi tímabil, 2026-2027, var birt á samfélagsmiðlum sambandsins fyrr í dag - hér má sjá myndbandið á FB og hér má sjá það á IG.

Samkvæmt spánni verða Álftnesingar deildarmeistarar og Tindastóll kemur þar í humátt á eftir gangi spá félaganna upp.

Lokaniðurstaðan samkvæmt spá félaganna og heildarstig hvers félags fylgir hér:
  1. Álftanes         354
  2. Tindastóll      334
  3. KR                   279
  4. Grindavík      269
  5. Stjarnan        253
  6. Keflavík         210
  7. Valur              193
  8. Njarðvík        136
  9. ÍR                   124
  10. Höttur           109
  11. Sindri              79
  12. Ármann          40
Mest var hægt að fá 363 stig og er Álftanes því einungis 9 stigum frá fullu húsi stiga. Liðin í Bónusdeildinni hafa greinilega mikla trú á að þeir sigli deildarmeistaratitli í hús. Lægsti mögulegi stigafjöldi í spánni var 33 stig. 

Það er ljóst að það er spennandi tímabil framundan og við hlökkum til fyrstu umferðar sem hefst þriðjudaginn fimmtudaginn 8. október næstkomandi.

Meistarar meistaranna verður leikinn í HS Orku-höllinni í Grindavík annað kvöld þegar Grindavík tekur á móti KR.