29 sep. 2026Þrír leikir eru í kvöld á opnunardegi Bónusdeildar kvenna tímabilið 2026-2027.

Leikirnir hefjast allir kl. 19:15.

KR tekur á móti Stjörnunni í Vesturbænum, Ármann fær Grindavík í heimsókn og Tindastóll fær Keflavík norður í Skagafjörðinn.

Á morgun taka svo Valskonur á móti nýkrýndum meisturum meistaranna frá Njarðvík og Fjölniskonur mæta í Ólafssal þar sem Haukar bíða þeirra í síðasta skráða leik 1. umferðar Bónusdeildar kvenna þetta tímabilið. 


Til að hita upp fyrir Bónusdeildirnar héldum við media dag á Hilton fyrir nokkrum dögum síðan og hér má sjá fyrsta opinbera myndbandið frá þeim skemmtilega degi.

Leikirnir eru auðvitað allir sýndir á SÝN Sport Ísland rásunum og svo er Körfuboltakvöld í beinni útsendingu annað kvöld eftir að öllum leikjum umferðarinnar er lokið. Kíkið endilega á dagksránna sem er framundan í beinni hjá SÝN hér.