25 sep. 2026
Spá formanna, fyrirliða og þjálfara Bónusdeildar kvenna fyrir komandi tímabil, 2026-2027, var birt á samfélagsmiðlum sambandsins fyrr í dag - hér má sjá myndbandið á FB og hér má sjá það á IG.
Samkvæmt spánni verða Njarðvíkurkonur deildarmeistarar en Grindavík verður ekki langt undan ef trú annarra liða á þeim reynist rétt.
Lokaniðurstaðan samkvæmt spá félaganna og heildarstig hvers félags fylgir hér:
-
Njarðvík - 233
-
Grindavík - 218
-
KR - 202
-
Haukar - 165
-
Tindastóll - 140
-
Keflavík - 126
-
Valur -103
-
Stjarnan - 80
-
Ármann - 52
-
Fjölnir - 31
Mest var hægt að fá 243 stig og er Njarðvík því 10 stigum frá fullu húsi stiga. Lægsti mögulegi stigafjöldi í spánni var 27 stig.
Það er ljóst að það er spennandi tímabil framundan og við hlökkum til fyrstu umferðar sem hefst þriðjudaginn 29. september næstkomandi.
Meistarar meistaranna verður leikinn í Njarðvík í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Keflavík.