.jpg)
12 ágú. 2026
U16 ára landslið stúlkna fór í frábæra ferð til Grikklands í byrjun ágúst þar sem það lá fyrir að þær myndu spila í þriggja liða F riðli í T3 hluta B-deildar EuroBasket þetta árið en deildinni var skipt upp í þrjá keppnishluta á þremur mismunandi keppnisstöðum í þremur mismunandi löndum. T3 keppni Íslands var leikin dagana 6. - 11. ágúst 2026. Markmiðið var að komast í úrslitaleikinn til að eiga möguleika á að vinna sinn hluta og tryggja sér þannig sæti í A-deildinni að ári en sigurvegarar hvers hluta: T1, T2 og T3, ná þeim áfanga.
Stelpurnar okkar í U16 ára landsliði mættu sterkar inn í mótið í Ioannina í Grikklandi en þær byrjuðu á að vinna Noreg mjög örugglega í fyrsta leik, því næst var það sannfærandi sigur gegn Bretlandi og þá var ljóst að sigur í riðlinum var staðfestur og sæti í undanúrslitum þar með tryggt. Þar mættu þær góðu liði Danmerkur og héldu sigurgöngunni áfram. Úrslitaleikurinn var gegn heimaliði Grikkja og þrátt fyrir mikla endurkomu í lokaleikhlutanum sem var sannarlega eftirtektarverð endurkoma, varð 2. sætið niðurstaðan þrátt fyrir hetjulega frammistöðu. Þrátt fyrir svekkelsið að vinna ekki úrslitaleikinn og ná þar með ekki að tryggja sér sæti í A-deildinni, geta leikmenn og þjálfarar verið afar stoltir af árangrinum sem er frábær.
Berglind Katla MVP
Liðsheildin og stemningin í liðinu er mikil og sáust þessir eiginleikar langar leiðir allt mótið. Einstaklingsframmistaða Berglindar Kötlu Hlynsdóttur var sömuleiðis mögnuð og hlaut hún að lokum MVP verðlaun T3 hlutans. Hún var þar með valin mikilvægasti leikmaðurinn í Ioannina í Grikklandi. Verðskulduð viðurkenning sem Berglind á sannarlega skilið. Í þessum fjórum leikjum skilaði Berglind ótrúlegri tölfræði en að meðaltali skoraði hún 32,2 stig í hverjm leik, tók 8,7 fráköst, átti 4,2 stoðsendingar og varði 2,7 skot. Til hamingju Berglind Katla, liðsfélagar, þjálfarar og aðstandendur.
Úrslit leikja Íslands í B-deild EuroBasket T3 í Ioannina í Grikklandi 2026:
F-riðill
ÍSLAND 80 - 59 Noregur
ÍSLAND 72 - 59 Bretland
Undanúrslit
ÍSLAND 87 - 78 Danmörk
Úrslit
ÍSLAND 72 - 75 Grikkland
2. sæti mótsins er staðreynd og þetta er enn ein frammistaða sumarsins sem eftir er tekið hjá íslensku U landsliði. Með því að enda í 2. sæti T3 hlutans staðfestist að U16 ára landslið stúlkna er í topp 22 í Evrópu í þessum aldursflokki eftir sumarið. Við erum öll stolt af árangrinum og gaman að sjá framgang unga landsliðsfólksins okkar.
U16 ára landslið stúlkna sem lék í B-deild EuroBasket T3 í Ioannina í Grikklandi 2026 var þannig skipað:
Berglind Katla Hlynsdóttir - Stjarnan
Björk Karlsdóttir - Keflavík
Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir - Njarðvík
Elva Björg Ragnarsdóttir - Keflavík
Eva Bryndís Ingadóttir - Haukar
Eva Ingibjörg Óladóttir - Stjarnan
Heiðrún Lind Sævarsdóttir - Keflavík
Hildur E. Kristinsdóttir - Haukar
Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir - Keflavík
Oddný Hulda Einarsdóttir - Keflavík
Rún Sveinbjarnardóttir - Bandaríkin
Valdís Helga Alexandersdóttir - Snæfell
Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson og honum til aðstoðar eru Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir.
Takk fyrir flott mót stelpur og aðstandendur - innilega til hamingju með ykkur!
Áfram ÍSLAND!


