
6 ágú. 2026
Sófus Máni Bender var tilnefndur af dómaranefnd KKÍ til að fara sem dómari með U18 ára landsliði karla á Norðurlandamótið í Södertalje í Svíþjóð dagana 23. – 28. júní 2026. Við höfum fengið nokkrar reynslusögur okkar dómara sem hafa dæmt erlendis í sumar en það er klárt að dómararnir okkar læra heilmikið á þessum mótum erlendis eins og leikmenn, þar sem þeir læra af erlendum kollegum sínum, rýna vel í eigin frammistöðu og frammistöðu annarra dómara en sömuleðis fræðast þeir um ýmsar aðrar hliðar dómarastarfsins.
Við heyrðum í Sófusi Mána til að bæta í dómarahornið okkar og jafnframt fræðast um hans reynslu fyrr í sumar sem tekur undir með þeim dómurum sem við höfum nú þegar tekið tali:
Við heyrðum í Sófusi Mána til að bæta í dómarahornið okkar og jafnframt fræðast um hans reynslu fyrr í sumar sem tekur undir með þeim dómurum sem við höfum nú þegar tekið tali:
„Allir dagar byrja á morgunfundi með instructors (dómaraleiðbeinandum) frá FIBA þar sem farið er yfir áherslur FIBA og rýnt er í klippur úr leikjunum okkar. Á þessum fundum ræðum við fram og til baka um það af hverju við dæmdum eins og við dæmdum og förum við saman yfir það hvort ákvarðanir væru réttar eða ekki. Þetta er frábær leið til að læra og vera sjálfsgagnrýninn. Dómaraheimurinn er frábær til að læra sjálfsrýni, þora að gera mistök og hafa mikilla trú á eigin styrkleikum. Þá erum við dugleg að spegla okkur í dómum annarra. Við fáum þessi tækifæri á þessu móti. Við fáum einnig tækifæri til að prufa eitthvað nýtt og til að þróa okkar dómgæsluferil. Helstu áherslur mótsins voru tímasetningar á flautinu og hver í þriggja manna dómarateymi átti að flauta í hvert sinn. FIBA vill helst að einn dómari flauti í hvert sinn.“
Sófus dæmdi eftirfarandi leiki:
- Leikdagur 1: Svíþjóð – Danmörk, dæmdi með Andri (EST) og LaTrice (FIN)
- Leikdagur 2: Finnland – Svíþjóð, dæmdi með Andris (EST) og Marcus (DEN)
- Leikdagur 3: Svíþjóð – Eistland, dæmdi með Casper (DEN) og Lukas (FIN)
- Leikdagur 4: Danmörk – Eistland, dæmdi með Ilias (SWE) og Lukas (FIN)
- Leikdagur 5: Eistland – Finnland, dæmdi með Casper (DEN) og Akrem (NOR).
„Við vorum með instructora (leiðbeinendur) á öllum leikjunum hjá okkur og fórum við yfir klippur strax eftir leik og ræddum markvisst saman um það hvernig leikurinn var dæmdur. Við fengum endurgjöf á frammistöðu teymisins og það sem við sem einstaklingar gerðum vel og lögðu línurnar um það hvað við ættum að prófa í næsta leik."
Sófus Máni var ánægður með stemninguna innan hópsins og segir:
Sófus Máni var ánægður með stemninguna innan hópsins og segir:
„Dómarahópurinn var snöggur að þétta raðirnar og mættum við oftast allir að horfa á leikina sem hinir voru að dæma og mættum svo þegar félagar okkar voru að fá endurgjöf og komum með tillögur þrátt fyrir að við værum ekki að dæma. Maður eignast margar nýja vini í svona ferðum og kemur með mikinn dómaralærdóm inn í næsta keppnistímabil hér heima. Þetta er frábært tækifæri sem dómarar fá."
Að lokum kemur Sófus Máni með heilræði út í kosmósinn: „Ég hvet öll þau sem hafa hugsað sér að kíkja á dómaranámskeið að fara sem fyrst og prófa þetta frábæra starf."
Að lokum kemur Sófus Máni með heilræði út í kosmósinn: „Ég hvet öll þau sem hafa hugsað sér að kíkja á dómaranámskeið að fara sem fyrst og prófa þetta frábæra starf."
Á sama tíma og við þökkum Sófusi Mána kærlega fyrir spjallið og innlitið í dómaraheiminn, tökum við heilshugar undir lokaorð hans um að hvetja öll sem hafa áhuga á að spreyta sig á dómgæslu að gera einmitt það, ekki hika - bara prófa!


