5 ágú. 2026

U16 ára landslið drengja er mætt til Norður-Makedóníu þar sem strákarnir okkar leika í B-deild EuroBasket (EM) í Gevgalija og Skopje en riðillinn okkar spilast í Gevgalija.

Leikjaplan, riðlaskiptingu, myndir frá leikjunum, beint opið streymi frá öllum leikjum og aðrar upplýsingar má finna á opinberri heimasíðu mótsins:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-eurobasket-2026-division-b 

Leikjadagskrá strákanna okkar í B-riðli mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:

6. ágúst kl.   19:00 ÍSLAND - Úkraína
7. ágúst kl.   16:30 ÍSLAND - Norður-Makedónía
8. ágúst kl.   09:00 ÍSLAND - Sviss
10. ágúst kl. 11:30 ÍSLAND - Kýpur
11. ágúst kl. 14:00 ÍSLAND - Króatía
 

8-liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um sæti 9-22 hefst fimmtudaginn 13. ágúst og mótinu lýkur laugardaginn 15. ágúst.

U16 ára landslið drengja er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Arnar Freyr Elvarsson - Keflavík
Árni Atlason - Breiðablik
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson - Valur
Baltasar Torfi Hlynsson - Stjarnan
Davíð Breki Antonsson - Keflavík
Hlynur Ingi Finnsson - Sindri
Jón Breki Sigurðarson - Stjarnan
Kormákur Nói Jack - Stjarnan
Marínó Ómarsson - Stjarnan
Sigurður Karl Guðnason - Keflavík
Sindri Logason - Haukar
Úlfur Týr Ágústsson - Stjarnan

Þjálfari liðsins er Dino Stipcic og honum til aðstoðar eru Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.

Við hlökkum til að fylgjast með strákunum okkar í Norður-Makedóníu næstu dagana.

Áfram ÍSLAND!