30 júl. 2026U18 ára landslið kvenna ferðast til Rúmeníu í dag þar sem stelpurnar okkar leika í B-deild EuroBasket (EM) í Tulcea í Rúmeníu. 

Leikjaplan, riðlaskiptingu, myndir frá leikjunum, beint opið streymi frá öllum leikjum og aðrar upplýsingar má finna á opinberri heimasíðu mótsins:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-womens-eurobasket-2026-division-b  

Leikjadagskrá stelpnanna okkar í A-riðli mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:

1. ágúst kl. 15:30 ÍSLAND - Rúmenía
2. ágúst kl. 10:30 ÍSLAND - Portúgal
4. ágúst kl. 10:30 ÍSLAND - Holland
5. ágúst kl. 13:00 ÍSLAND - Aserbaídsjan

8 liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um sæti 9-20 hefst föstudaginn 7. ágúst og mótinu lýkur sunnudaginn 9. ágúst.

U18 ára landslið kvenna er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Arnheiður Ólafsdóttir - Haukar
Berta María Þorkelsdóttir - Valur
Brynja Benediktsdóttir - Ármann
Harpa Karítas Kjartansdóttir - Fjölnir
Hulda María Agnarsdóttir - Njarðvík
Inga Lea Ingadóttir - Njarðvík
Katla Guðjónsdóttir - Fjölnir
Kristín Björk Guðjónsdóttir - Njarðvík
Rebekka Rut Steingrímsdóttir - KR
Sara Björk Logadóttir - Njarðvík
Sigrún Sól Brjánsdóttir - Stjarnan
Þórey Tea Þorleifsdóttir - Grindavík

Þjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar eru Margrét Ósk Einarsdóttir og Inga Fríða Ingvarsdóttir.

Við hlökkum til að fylgjast með stelpunum okkar í Rúmeníu næstu dagana.

Áfram ÍSLAND!