24 júl. 2026

Bjarki Þór Davíðsson sem er einn af okkar fremstu dómurum fór á dögunum til Bratislava að dæma í B-deild U20 EuroBasket. Við fengum að skyggnast inn í stemninguna sem fylgir svona dómaraverkefni og fylgjum þar með eftir fréttinni af Friðriki sem dæmdi á NM U18 kvenna fyrr í sumar. 

Við gefum Bjarka orðið sem segir: Á mótinu voru 30 dómarar, allt mjög hæfir dómarar en með með mismikla reynslu. Sumir voru að stíga sín fyrstu skref á FIBA-vettvanginum en aðrir mjög reynslumiklir, eins og til dæmis Zafer Yilmaz. Einnig vorum við með þrjá öfluga instructors, þá Vitauskas, Kamnikar og Demetriou."

Bjarki bætir við um dagskrá mótsins: Dagskráin var þétt alla daga. Við byrjuðum á morgunæfingu með crewinu sem dæmdi saman þann dag, annaðhvort útihlaup eða líkamsrækt. Að því loknu tók við morgunmatur og síðan fundur með instructorunum þar sem var farið yfir hvað gekk vel og hvað mætti bæta. Auk þess voru myndbandsklippur af ýmsum atvikum greindar og ræddar ítarlega. Mikil áhersla var einnig lögð á að hvert crew scoutaði liðin sem það átti að dæma og útbjó skýrslu eftir hvern leik."

Bjarki dæmdi alls sjö leiki á mótinu en sat einnig fjóra leiki sem fjórði dómari. Leikirnir sem Bjarki dæmdi voru eftirfarandi:

10. júlí Makedónía - Slóvakía
11. júlí Búlgaría - Holland
12. júlí Svíþjóð - Írland
14. júlí Eistland - Lúxemborg
17. júlí Makedónía - Georgía
18. júlí Albanía - Kósóvó
19. júlí Georgía - Danmörk

Eins og sjá má var dagskráin þétt og nóg að gera á hverjum degi. 

Að lokum segir Bjarki: Í heildina gekk mótið vel og maður kemur alltaf reynslunni ríkari heim eftir svona verkefni."

Við þökkum Bjarka kærlega fyrir að gefa okkur innsýn í verkefnið sitt í B-deild U20 EuroBasket í Bratislava.