9 júl. 2026U16 ára landslið stúlkna endaði í 4.sæti á NM en mótið fór fram í Kisakallio höllinni í Lohja í Finnlandi.

Stelpurnar okkar unnu góðan sigur gegn Svíum og áttu jafnan leik gegn Eistum. Stelpurnar eru spenntar fyrir EM sem fram fer í Grikklandi í ágúst en NM var góður undirbúningur fyrir það verkefni.

Það var gaman að fylgjast með liðinu á mótinu og við hlökkum til að fylgjast með þeim aftur í næsta verkefni í ágúst.

Úrslit mótsins:

ÍSLAND 64 - 93 Finnland
ÍSLAND 67 - 88 Danmörk
ÍSLAND 59 - 65 Eistland
ÍSLAND 72 - 60 Svíþjóð
ÍSLAND 65 - 94 Noregur

U16 ára landslið kvenna skipa:

Björk Karlsdóttir
Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir
Elva Björg Ragnarsdóttir
Eva Bryndís Ingadóttir
Eva Ingibjörg Óladóttir
Heiðrún Lind Sævarsdóttir
Hildur E. Kristinsdóttir
Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir
Lísbet Lóa Sigfúsdóttir
Margrét Dúna Guðmundsdóttir
Oddný Hulda Einarsdóttir
Valdís Helga Alexandersdóttir

Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson og honum til aðstoðar eru Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir.