25 jún. 2026

Nokkuð er um liðið frá því Daninn Jesper W. Sörensen varð Íslandsmeistari í körfuknattleik með KR en þeir sem muna eftir íslensku deildinni um aldamótin muna væntanlega eftir þessum frambærilega bakverði sem lagði sitt af mörkum þegar KR varð Íslandsmeistari árið 2000. 


„Ég á afar góðar minningar frá því ég var í KR. Það var góður kafli á mínum körfuboltaferli og raunar afskaplega skemmtilegur tími í lífi mínu,” segir Sörensen. Hann kom til KR árið 1998 og lék með liðinu tvö tímabil eða 1998-00. Var því leikmaður KR á aldarafmæli félagsins 1999 þegar mikið var um að vera í Frostaskjólinu. 


Daninn hefur verið duglegur að rækta tengslin við Íslendinga. „Ég á marga vini á Íslandi og reyni að hitta þá eins oft og mögulegt er. Ef ég er staddur á Íslandi reyni ég að fara út í KR og heilsa upp á fólkið. En ég er líka heppinn hvað það varðar að einhverjir íslenskir vinir og kunningjar hafa flutt til Kaupmannahafnar. Ég get því hitt þá af og til,” segir Sörensen sem í dag starfar sem framkvæmdastjóri danska körfuknattleikssambandsins. KKÍ.is notaði tækifærið, greip Sörensen og spjallaði aðeins við hann þegar hann var staddur á FIBA Europe þinginu sem haldið var í Reykjavík á dögunum. 


Ekki fer á milli mála að Dananum þykir vænt um Ísland og Íslendinga. „Síðast kom ég til Íslands í október vegna fundar hjá körfuboltasamböndunum á Norðurlöndunum. Þá vildi svo til að KR-ingar héldu smá athöfn til minnast þess að aldarfjórðingur var liðinn frá því við urðum Íslandsmeistarar. Það var virkilega notalegt og þá gafst mér tækifæri til að hitta marga úr liðinu sem á annað borð eru búsettir á Íslandi, eins og Óla Orms [Ólaf Jón Ormsson], Kobba [Jakob Örn Sigurðarson] og Jón Arnór [Stefánsson[ sem dæmi. 


Fer í ræktina í KR-treyjunni


Íslandsmeistaralið KR árið 2000 var vel mannað. Auk danans voru í liðinu Kanadamaðurinn Keith Vassell sem margir muna eftir og Jónatan Bow sem spilaði auðvitað lengi í deildinni. Þá voru ungir menn að koma upp sem áttu heldur betur eftir að gera það gott. Daninn nefndi Jón Arnór og Jakob en einnig var Helgi Már Magnússon í hópnum. Fleiri leikmenn sem spiluðu lengi í deildinni voru í þessu Íslandsmeistaraliði. Auk Ólafs Jóns má nefna Arnar Kárason, Steinar Kaldal og Ingvald Magna Hafsteinsson til að nefna einhverja. Ungur maður stýrði þá KR-liðinu, Ingi Þór Steinþórsson, sem síðar gerði bæði lið Snæfells að Íslandsmeisturum og vann aftur með KR árið 2019.


Ef Daninn hugsar til baka. Sá hann fyrir sér á þeim tíma að ungur leikmaður Jón Arnór Stefánsson gæti átt eftir að verða farsæll atvinnumaður eins og raunin varð?


„Já engin spurning. Jón Arnór kom heim til Íslands úr menntaskóla í Bandaríkjunum á miðjum vetri. Ég man vel eftir því að hafa átt samtal við Inga Þór um þetta á þeim tímapunkti. Ég var sjálfur 22 ára gamall og spurði hvort það væri virkilega skynsamlegt að taka 18 ára gamlan leikmann inn í liðið á miðju tímabili. Ingi reyndi að útskýra fyrir mér að; já þennan 18 ára leikmann viljum við taka inn. Jón mætti í framhaldinu á æfingar með meistaraflokki og þá breyttust svolítið viðureignirnar eldri á móti yngri en við spiluðum gjarnan eldri á móti yngri á æfingum. Mörgum árum síðar sagði Ingi mér að hann hætti því að láta menn spila yngri á móti eldri á æfingum þegar stutt var í leik. Það var bara of mikil áhætta því harkan var orðin svo mikil. Þeir eldri vildu alls ekki tapa fyrir þeim yngri og í yngra liðinu voru þvílíkt hæfileikaríkir menn eins og Jón, Kobbi, Helgi og Steinar. 


Nokkrir þeirra ungu manna sem Jesper Sörensen spilaði með áttu eftir að taka þátt í að skrifa nýjan kafla í sögu körfuboltans á Íslandi þegar KR varð Íslandsmeistari sex ár í röð frá 2014 - 2019. Daninn fylgdist þá vel með gangi mála. „Ég fylgdist með því og fylgist raunar alltaf með úrslitum leikja á Íslandi. Ég fagnaði því til dæmis í vetur þegar KR varð bikarmeistari. Ég fer alltaf annað slagið í KR-treyjunni í ræktina. Ég er svarthvítur þegar kemur að íslenskum körfubolta. Á því leikur ekki nokkur vafi.”


Craig Pedersen í miklum metum


Sörensen þekkir vitaskuld vel til íslenska landsliðsþjálfarans Craigs Pedersens sem búið hefur árum saman í Danmörku og á danska eiginkonu. Þar hafði Pedersen getið sér gott orð áður en honum var boðið að taka við íslenska landsliðinu. 


„Hann nýtur afar mikillar virðingar í Danmörku. Ég veit að hann er frá Kanada en við lítum á hann sem Dana núorðið. Þegar ég lék með danska landsliðinu var hann aðstoðarþjálfari og ég kynntist honum því ágætlega. Á næsta ári mun hann meira að segja þjálfa dóttur mína og ég verð því áfram í samskiptum við Craig. Hann á alla velgengnina skilið því hann er einfaldlega frábær náungi fyrir utan það að vera fær þjálfari. Við í Danmörku kunnum öll afar vel við hann,” segir Jesper W. Sörensen.