2 jún. 2026Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra (FNV) býður upp á stórskemmtilega nýjung á komandi haustönn í samstarfi við KKÍ þegar veggja eininga áfangi í körfuboltadómgæslu verður kenndur í fyrsta sinn. Við hvetjum þig eindregið til að taka þátt og prófa en þetta gæti verið góð leið til að kynnast körfuboltanum enn frekar og fá sömuleiðis betri innsýn í heim dómaranna.

Við erum virkilega spennt að sjá þessi fræði á námskrá Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og hlökkum til að sjá nýja dómara verða til. Reynslumiklir dómarar kenna áfangann sem veitir réttindi til að dæma leiki á vegum KKÍ.

Áhugasöm setja sig í samband við FNV í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar og skráningu: fnv@fnv.is