28 maí 2026

Stjarnan/KFG urðu Íslandsmeistarar í 12. flokki karla 24. maí síðastliðinn með sigri á Selfoss. Selfoss unnu fyrsta leikinn í Vallaskóla en Stjarnan/KFG jöfnuðu í leik tvö sem fór fram í Ásgarði þannig að blása þurfti til úrslitaleiks. Úrslitaleikurinn fór síðan fram í Vallaskóla og fór leikurinn 87-101 Stjörnunni/KFG í vil. Þjálfarar liðsins eru Ingi Þór Steinþórsson, Ilija Omrcen og Bogi Sigurbjörnsson. 

Jakob Kári Leifsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 14,8 stigum, 8,5 fráköst og 8 stoðsendingar. 

Til hamingju Stjarnan/KFG!