
28 maí 2026
Stjarnan urðu Íslandsmeistarar í 10. flokki stúlkna 25. maí síðastliðinn með sigri á Keflavík. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Blue-höllinni og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í Ásgarði. Leikurinn fór 89-49 Stjörnunni í vil. Þjálfarar liðsins eru Hörður Unnsteinsson og Bára Björk Óladóttir.
Berglind Katla Hlynsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 39 stigum, 12,7 fráköstum og 9,3 stoðsendingum.
Til hamingju Stjarnan!


