
31 mar. 2026
Dregið var í riðla fyrir undankeppni Eurobasket 2029 í Sviss í dag. Um er að ræða svokallaða forkeppni sem Ísland tekur þátt í ásamt 9 öðrum þjóðum.
Stelpurnar okkar drógust í A riðil með Sviss, Írlandi og Azerbaijan, en leikið verður heima og að heiman í tveimur gluggum. Annars vegar í nóvember á þessu ári og hins vegar í febrúar 2027.
Hér að neðan er leikjadagskrá forkeppninnar, sem hefst í nóvember næstkomandi
11 nóvember Írland - Ísland
14 nóvember Ísland - Sviss
17 nóvember Ísland - Azerbaijan
10 febrúar Ísland - Írland
13 febrúar Sviss - Ísland
16 febrúar Azerbaijan - Ísland


