
21 mar. 2026
Karlalið Hattar tryggði sér sigur í 1. deild karla á útivelli síðasta föstudagskvöld 20. mars, og þar með sæti í Bónus deild karla á næstu leiktíð.
Við óskum Hetti til hamingju með deildarmeistaratitilinn og sæti í Bónus deildinni.
Úrslitakeppni í 1. deild karla hefst í næstu viku þar sem átta lið berjast um eitt laust sæti í Bónus deildinni að ári.
Liðin sem mætast í 8 liða úrslitum 1. deildar eru eftirfarandi og vinna þarf 3 leiki til að komast áfram.
(2) Sindri – (9) Snæfell
(3) Haukar – (8) Selfoss
(4) Fjölnir – (7) KV
(5) Breiðablik – (6) Skallagrímur
Fyrstu leikir úrslitakeppninnar verða leiknir 27. og 28. mars og má sjá alla leikjadagskrá 8 liða úrslita hér.


