
10 mar. 2026Það hefur orðið ein breyting á hóp íslenska liðsins sem mætir Serbíu á morgun. Ásta Júlía Grímsdóttir meiddist á ökkla og mun ekki spila leikinn á morgun, en verður vonandi orðin klár fyrir heimaleikinn gegn Portúgölum þann 17. mars.
Í hennar stað kemur inn í hópinn Kristrún Ríkey Ólafsdóttir leikmaður KR. Kristrún flaug utan í morgun og kemur til móts við hópinn í Novi Sad núna um kvöldmatarleytið.
Leikurinn hefst kl 17:00 á íslenskum tíma á morgun og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.


