5 mar. 2026

Stelpurnar okkar eiga sviðið næst. Þær spila tvo leiki í undankeppni EuroBasket 2027 núna í mars mánuði. 
Fyrri leikurinn fer fram í Novi Sad í Serbíu miðvikudaginn 11. mars kl 17:00 og sá síðari gegn Portúgal í Hafnarfirði þriðjudagskvöldið 17. mars kl 19:30.

Pekka Salminen og þjálfarateymi hans hafa valið hópinn sem heldur út til Serbíu á laugardaginn. Valdir voru 12 leikmenn sem ferðast út og þrír til viðbótar sem koma til móts við hópinn við heimkomu og æfa með liðinu fyrir leikinn gegn Portúgal. 

Hópurinn sem heldur út til Serbíu á laugardaginn er þannig skipaður: 

Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur 
Danielle Rodriguez – Njarðvík
Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík
Kolbrún María Ármannsdóttir - TK Hannover Luchse
Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR  
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík 
Sigrún Björk Ólafsdóttir - Haukar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir - Haukar
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík 
Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar
Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur 

Þær Berglind Katla Hlynsdóttir, Eva Wium Elíasdóttir og Kristrún Ríkey Ólafsdóttir munu svo æfa með hópnum fyrir leikinn gegn Portúgal.