
20 feb. 2026Ísland spilar gegn Litháen hér heima á föstudaginn eftir viku, 27. febrúar, í Laugardalshöll. Liðin ferðast svo til Litháen og spila aftur ytra mánudaginn 2. mars kl 16:30 á íslenskum tíma. Martin Hermannsson og Frank Aron Booker voru einnig valdir í hópinn, en geta því miður ekki tekið þátt vegna meiðsla.
Craig Pederson og þjálfarateymi hans völdu 13 leikmenn í hópinn sem koma saman til æfinga hér heima á sunnudaginn. Leikurinn hefst kl 19:30 á föstudaginn og er nú þegar orðið uppselt á leikinn.
Hópurinn:
Elvar Friðriksson - Anwil Wloclawek - 86 leikir
Haukur Helgi Pálsson - Álftanes - 84
Hilmar Smári Henningsson - Stjarnan - 30
Jón Axel Guðmundsson - CB San Pablo Burgos - 47
Kári Jónsson - Valur - 45
Kristinn Pálsson - General Contractor Jesi - 47
Orri Gunnarsson - Stjarnan - 23
Ólafur Ólafsson - Grindavík - 52
Styrmir Snær Þrastarson - CB Zamora - 32
Tryggvi Snær Hlinason - Bilbao Basket – 81
Veigar Páll Alexandersson - Njarðvík - Nýliði
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson - KR - 31
Ægir Þór Steinarsson - Stjarnan - 103
Þjálfarar: Craig Pedersen, Baldur Ragnarsson og Viðar Örn Hafsteinsson


