11 feb. 2026

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 36/2025–2026

Með vísan til ákvæða d-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal leikmaður Stjörnunnar, Giannis Agravanis, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. auk eins leiks banns vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur og Stjörnunnar sem fram fór þann 3. febrúar 2026

Agamál 133/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Baldur Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.