
4 des. 2025
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 20/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Toms Vaišļa, leikmaður Stál-Úlfs, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Reyni Sandgerði gegn Stál-Úlf, sem fram fór þann 23 nóvember 2025.
Agamál 21/2025-2026:
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal leikmaður Keflavík u, Eyþór Lár Bárðarson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Keflavík u gegn KFG sem fram fór þann 30. nóvember 20
25.


