6 nóv. 2025Pekka Salminen og þjálfarateymi hans hafa valið 15 leikmenn í landsliðshóp sem mun spila tvo leiki í G riðli undankeppni EuroBasket 2027 gegn Serbíu og Portúgal. Hópurinn kemur saman til æfinga á morgun föstudag og spilar fyrsta leik sinn í undankeppninni miðvikudaginn 12. nóvember gegn Serbíu kl 19:30 í Ólafssal að Ásvöllum. Frítt er á leikinn í boði Bónus. 

Hópurinn ferðast svo til Portúgal í kjölfarið og spilar þar gegn heimakonum í Lissabon þriðjudaginn 18. nóvember. 

Hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum:

Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík - 14
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur - 14
Danielle Rodriguez – Njarðvík - 4
Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan - 10
Helena Rafnsdóttir – Njarðvík - 2
Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík - 15
Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse, Þýskalandi - 2
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR - 2
Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR (nýliði)
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík - 32
Sigrún Björg Ólafsdóttir – Haukar - 7
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík -24
Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar - 10
Þóra Kristrín Jónsdóttir – Haukar - 37
Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur - 7