
28 maí 2025
Stjarnan varð Íslandsmeistari í 9. flokki drengja 24.maí síðastliðinn með sigri á Keflavík. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllini en Keflavík jöfnuðu í leik tvö sem fór fram í Blue-höllinni þannig að blása þurfti til úrslitaleiks. Úrslitaleikurinn fór síðan fram í Umhyggjuhöllinni og fór leikurinn 80-71 Stjörnunni í vil í æsispennandi leik. Þjálfari liðsins er Baldur Þór Ragnarsson.
Kormákur Nói Jack var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 24,8 stigum, 11,5 fráköstum og 1,8 stoðsendingum.
Til hamingju Stjarnan!