
28 maí 2025
Haukar urðu Íslandsmeistarar í Ungmennaflokki karla 22.maí síðastliðinn með sigri á Stjörnunni/KFG. Stjarnan/KFG unnu fyrsta leikinn á Ásvöllum en Haukar unnu síðan annan leikinn sem fór fram í Umhyggjuhöllinni þannig að blása þurfti til úrslitaleiks. Úrslitaleikurinn fór fram á Ásvöllum og fór leikurinn 100-89 Haukum í vil. Þjálfari liðsins er Friðrik Ingi Rúnarsson.
Ágúst Goði Kjartansson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 22 stigum, 2,3 fráköstum og 9 stoðsendingum.
Til hamingju Haukar!