
10 apr. 2025
KKÍ og Pekka Salminen hafa ráðið aðstoðarþjálfara A landsliðs kvenna næstu tvö árin. Með Pekka verða Ólafur Jónas Sigurðsson, Emil Barja og Daníel Andri Halldórsson. Fyrsta verkefnið hjá þeim verða æfingabúðir frá 14.-24. ágúst, er það liður í undirbúningi fyrir undankeppni EuroBasket 2027 (FIBA Women’s EuroBasket 2027 Qualifiers First Round). Dregið verður í riðla 23. júlí næstkomandi og mun drátturinn fara fram í Munchen í Þýskalandi. Fyrstu leikirnir verða í landsleikjaglugganum sem verður spilaður 12.-18. nóvember.